KEA-hótel hafa opnað Salt gistiheimili, nýtt gistihús á Siglufirði. Gistihúsið er staðsett í húsi sem áður hýsti Hótel Hvanneyri sem á sér langa sögu á Siglufirði. Salt er góð viðbót fyrir þá sem vilja gista á Siglufirði.
Hótel Hvanneyri hóf rekstur árið 1934 og var lengi einn helsti samkomustaður Siglfirðinga.
KEA hótel tóku við rekstri Sigló Hótels í febrúar síðastliðnum og færa nú út kvíarnar með opnun á Salt gistiheimili. Nafn gistihússins vísar til síldráranna á Siglufirði þar sem síldin var söltuð í viðartunnur en merki gistihússins er viðartunna, sem vísar einnig til þessa tíma.
Mynd/Ljósmyndasafn Siglufjarðar