Upplýsingar um heilsueflandi þjónustu heilsugæslunnar voru kynntar á 10. fundi öldungaráðs Fjallabyggðar þegar Elín Arnardóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands í Fjallabyggð, kom á fund ráðsins.
Elín greindi frá því að fólk væri hvatt til að nýta sér þjónustu heilsugæslunnar, meðal annars þegar kemur að flóknum þjónustukerfum og ráðgjöf um eigin heilsu. Hún benti jafnframt á að einstaklingar 60 ára og eldri eigi kost á svokallaðri heilsueflandi móttöku á heilsugæslunni.
Hægt er að bóka tíma í slíka móttöku hjá móttökuritara heilsugæslunnar.
Öldungaráð þakkaði Elínu fyrir kynninguna og hvatti íbúa til að nýta sér þjónustuna.
Opnunartímar HSN í Ólafsfirði
Mánudaga-föstudaga frá kl. 8-12
Opnunartímar HSN á Siglufirði
Mánudaga-fimmtudaga frá kl. 8-15:30
Föstudaga frá kl. 8-14

