Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir tölur um landaðan afla með samanburði við fyrri ár á 123. fundi hafnarstjórnar Fjallabyggðar.

Á Siglufirði höfðu þann 31. október 18.616 tonn borist á land í 1.677 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 17.829 tonn í 1.739 löndunum.

Á Ólafsfirði hefur 280 tonnum verið landað í 170 löndunum, á sama tíma í fyrra hafði 509 tonnum verið landað í 287 löndunum.