Við hátíðlega athöfn á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri 27. maí voru Hvatningarverðlaun SAk 2025 afhent í fimm flokkum: öryggi, samvinna, framsækni, fagmennska og samskipti. Verðlaunin eru veitt starfsfólki sem skarar fram úr í störfum sínum og leggur sitt af mörkum til að skapa jákvæða og heilbrigða vinnustaðamenningu á SAk.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á mikilvægi einstaklingsframtaks og teymisvinnu í þjónustu við sjúklinga og samstarfsfólk. Óskað var eftir tilnefningum frá starfsfólki og barst fjöldi rökstuddra tilnefninga.

ÖRYGGI

Verðlaunin í þessum flokki eru veitt starfsfólki sem sinnir öryggismálum og gæðastarfi af metnaði og einlægni.

🔵 Björn Gunnarsson, sérfræðilæknir og klínískur gæða- og öryggisstjóri: „Sinnir mjög mikilvægu starfi og á skilið hrós fyrir mikinn metnað til að efla öryggismenningu á SAk.“

🔵 Ragnheiður Reykjalín Magnúsdóttir, aðstoðardeildarstjóri geðlækninga: „Hún er verkefnastjóri af guðsnáð og lifir fyrir gæðastarf og umbætur til að tryggja öryggi sjúklinga.“

SAMVINNA

Í þessum flokki er lögð áhersla á framúrskarandi liðsheild, samskipti og jákvæð áhrif í teymisvinnu.

🔵 Sólveig Hulda Valgeirsdóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar:

„Yndisleg í alla staði, skilningsrík, hvetjandi og stuðningsrík, frábær í teymisvinnu, jákvæð og yndisleg og sannur heiður að vinna með henni. Hún hefur huggað mann þegar starfið reynist erfitt og gefur upplýsingar á skýran og skilvirkan hátt. Sólveig tekur alltaf jákvætt í allar hugmyndir og verkefni sem hún fær.“

FRAMSÆKNI/ÞRÓUN

Veitt fyrir nýsköpun og þróunarvinnu sem stuðlar að bættri þjónustu og aukinni þekkingu innan stofnunarinnar.

🔵 Brynja Vignisdóttir, hjúkrunarfræðingur:

„Frumkvöðull í því að koma TMS-teyminu á laggirnar, sem hefur barist fyrir inntöku nýrrar meðferðar og hugsað framsýnt með þróun þjónustunnar að leiðarljósi og sett á laggirnar TMS-meðferðir fyrir sjúklinga á göngudeild geðdeildar.“

FAGMENNSKA

Viðurkenningar veittar fyrir vönduð, ábyrg og fagleg vinnubrögð í daglegu starfi.

🔵 Brynja Dröfn Tryggvadóttir, deildarstjóri gjörgæsludeildar:

„Hún er fagleg, víðsýn, lausnamiðuð og á auðvelt með að fá starfsfólk með sér í lið og setur þarfir annarra á undan sínum. Bendir starfsfólki sínu á hvernig það getur vaxið í starfi og hvetur áfram. Brynja heldur vel utan um hópinn sinn og tekur málsstað hópsins þegar henni finnst á okkur hallað.“

🔵 Guðjón Kristjánsson, forstöðulæknir lyflækninga:

„Öflugur liðsmaður sem hefur hag sjúklinga og framþróun stofnunarinnar að leiðarljósi. Sýnir öllum virðingu hvort sem um er að ræða kollega, sjúklinga, nemendur eða aðstandendur. Kemur jafnt fram við alla og mismunar ekki. Hann er kennslufús, hvetjandi og styður teymið sitt vel. Er harðduglegur og leggur allan sinn metnað í bæði að sinna skjólstæðingum og sækja hingað sérfræðinga og auka framboð og þjónustu.“

SAMSKIPTI

Viðurkenning veitt fyrir hlýleg, skýr og virðingarfull samskipti við samstarfsfólk og sjúklinga.

🔵 Eygló Brynja Björnsdóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar:

„Algjör fyrirmynd í samskiptum, hlý, ákveðin og miðlar upplýsingum til starfsfólks með skýrum hætti. Á auðvelt með að fá fólk með sér, hrósar og er fyrirmynd. Hefur einstaka nærveru og nær til hópsins með virðingu og vinsemd og heldur vel utan um það starf sem fram fer á endurhæfingardeild.“

Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar öllum þeim sem sendu inn tilnefningar og óskar verðlaunahöfum innilega til hamingju. Hvatningarverðlaunin eru mikilvæg áminning um þá öflugu menningu sem byggð hefur verið upp innan stofnunarinnar – menningu sem byggir á virðingu, fagmennsku, jákvæðni og öryggi í þjónustu við samfélagið.