Fasteignamiðlun kynnir eignina Aðalgata 24, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0083 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Aðalgata 24 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0083, birt stærð 126.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Sjá myndir: HÉR
Um er að ræða þriggja/fjögurra herbergja hæð í miðbæ Siglufjarðar. Eignin samanstendur af anddyri, eldhúsi, stofu, tveimur svefnherbergjum, auka svefn/vinnurými, baðherbergi, þvottahúsi, geymslu og svölum. Mikil lofthæð er í stofu með stórum gluggum og frábæru útsýni. Allar vatnslagnir og frárennsli var endurnýjað 2023 og eru nýir ofnar í íbúðinni. Nýlegar hurðar eru á inngangi og svölum. Þak var endurnýjað fyrir einhverjum árum.
Anddyri á neðri hæð, steyptur snúinn stigi upp í íbúðina. Í húsinu er nýstofnað húsfélag með reglulegar tekjur sem nýtast til viðhalds hússins.
Anddyri: er með grófu teppi á gólfi.
Geymsla: er inn af anddyri með góðu hilluplássi og steyptu gólfi. Einnig er gott geymslurými á gangi á efri hæð.
Eldhús: er með grárri innréttingu og dökkri borðplötu. Gólf er flotað.
Stofa: er rúmgóð með mikilli lofthæð og stórum gluggum með góðu útsýni. Parket er á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi, en einnig hægt að nýta sérútbúið rými þar sem farið er út á svalir sem auka svefnherbergi eða vinnurými. Parket er á gólfi í öðru svefnherberginu dúkur á hinu.
Baðherbergi: er með frístandandi baðkari, innréttingu með vaski, nýjum handklæðaofni og nýlegu klósetti. Gólf er flotað og lagnir eru nýjar. Þvottahús: gluggi í suður með opnanlegu fagi, nýr handklæðaofn, skolvaskur og hillur.
Garður: sameiginlegt skjólsælt rými og svalir í austur.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,4% – 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.