Myllan hefur ákveðið með tilliti til neytendaverndar og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla heil Heimilisbrauð 770 g með best fyrir 27.01.2025 vegna aðskotahlutar sem sást á röntgenmyndum við hefðbundið gæðaeftirlit en mögulega er um að ræða brot úr peru.

Neytendum er bent á að neyta ekki 770 g Heimilisbrauðs með best fyrir dagsetningu 27.01.2025 heldur farga þeim eða skila í verslanir þar sem þau eru keypt eða til Myllunnar Blikastaðavegi 2.

Tegund innköllunar:  Vara mögulega með aðskotahluti
Vöruheiti:  Heimilisbrauð heilt 770 g

Vörunúmer: 1023
Umbúðir:  Poki
Nettóþyngd:  770 g
Framleiðandi:  Myllan
Best fyrir:  27.01.2025
Strikanúmer: 5690568010235
Dreifing: Verslanir um land allt