Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á Pestó kjúklingapasta frá Móður náttúru sem fyrirtækið Álfsaga framleiðir vegna þess að varan er vanmerkt ofnæmis- og óþolsvaldi (mjólk). Varan inniheldur PARMESAN OST (MJÓLK) sem ekki er merktur á umbúðir vörunnar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit HEF (Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness) innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.
Einungis er verið að innkalla eftirfarandi lotur:
- Vörumerki: Móðir náttúra
- Vöruheiti: Pestó kjúklingapasta
- Framleiðandi: Álfasaga ehf.
- Nettómagn: 390g
- Vörunúmer: 6053
- Strikamerki: 5694311277463
- Lotunúmer: L 244, síðasti neysludagur 5.9.22 og L247, síðasti neysludagur 8.9.22
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Krónan, Hagkaup, N1, Cornershop og Lagardere.