Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. 

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota frá 2. desember 2021 til og með 15. janúar 2022.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera sem og starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 26. nóvember.

Skráning fer fram á netfanginu irish@dalvikurbyggd.is  og nánari upplýsingar gefur Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi í síma 460 4900.