Jóna Margareta Júlíusdóttir Lundberg hefur hafið störf á fjölskyldusviði Húnaþings vestra.
Hún sinnir starfi ráðgjafa á sviðinu fyrir börn og í málefnum fatlaðra.
Viðvera Jónu Margaretu er alla jafna að morgni í Grunnskóla Húnaþings vestra en á skrifstofu fjölskyldusviðs í Ráðhúsi eftir hádegi.
Netfang hennar er jona@hunathing.is.
Mynd/Húnaþing vestra