Konudagurinn nálgast og að vanda verður blómasala í Fjallabyggð af því tilefni. Sala á blómum fer fram sunnudaginn 22. febrúar næstkomandi og gefst íbúum kostur á að gleðja konur í sínu lífi með litfögrum blómvendi.

Það er Kiwanisklúbburinn Skjöldur í Fjallabyggð sem stendur fyrir sölunni líkt og undanfarin ár. Blómasalan er orðin fastur liður í bæjarlífinu á konudaginn og hefur jafnan notið góðs stuðnings heimamanna.

Salan verður á milli klukkan 10 og 12 á konudaginn sjálfan, sunnudaginn 22. febrúar. Selt verður í Tjarnarborg á Ólafsfirði og í Kiwanshúsinu að Aðalgötu 8 á Siglufirði.

Áhugasömum er bent á að gott getur verið að panta blóm fyrirfram. Hægt er að hafa samband við Guðmund í síma 892 1846, Jón Hans í síma 868 4705 eða Ægi í síma 898 4310.

Með blómakveðju á konudaginn er ekki aðeins sýnd hlýja og virðing, heldur einnig stutt við gott málefni í heimabyggð.

Mynd: Pixabay