Utanríkisráðuneytið harmar að borið hafi á skorti á kjörseðlum vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Spáni fyrir komandi forsetakosningar á Íslandi.

Í aðdraganda kosninga hverju sinni leggja ræðismenn Íslands mat á hversu margra kjörseðla er þörf, sem byggir m.a. á fjölda kjósenda í fyrri kosningum. Svo virðist sem fjöldi Íslendinga sem dvelur nú um stundir í landinu hafi verið vanmetinn.

Utanríkisráðuneytið hefur þegar sent viðbótarkjörseðla í forgangi til hlutaðeigandi kjörræðismanna á Spáni og þá er starfsmaður ráðuneytisins á leiðinni til Kanaríeyja til að aðstoða við framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar. 

Til að bregðast við stöðunni sem uppi er hafa ræðismenn Íslands á Spáni, í samráði við utanríkisráðuneytið, ákveðið að bjóða upp á sérstaka kjörfundi á Why Not Lago sem er í Maspalomas á suðurhluta Gran Canaria milli klukkan 11 og 14 í dag og á suðurhluta Tenerife á fimmtudag, föstudag og laugardag milli klukkan 10 og 14 að staðartíma. Nánari staðsetningum kjörfundanna verður komið á framfæri á Facebook innan tíðar.

Auk þessa verður áfram hægt að greiða utankjörfundaratkvæði á ræðisskrifstofum Íslands á Spáni á hefðbundnum opnunartíma. 

Kosningabras hellisbúa