Föstudaginn 1. nóvember verður haldið krassandi konukvöld í Höllinni Ólafsfirði og verður mikið um dýrðir.
Þar verður Skarlett.is með hjálpartæki ástarlífsins, sexy undirföt á 20 – 40% afslætti og dagatölin vinsælu. Ílit Snyrtistofa verður með til sölu snyrti- og hárvörur og býður upp á afslátt af völdum vörum.
20 fyrstu konurnar sem mæta frá veglegan glaðning frá frá Scarlet.is og Ílit Snyrtistofu.
Húsið opnar kl. 20:00 og er frítt inn, bleikur fordrykkur í boði, allir sem versla vörur fá happadrættismiða og verður dregið úr veglegum vinningum í lok kvöldsins.
Eva Karlotta trúbbar og heldur uppi fjörinu eins og henni er einni lagið.
Karlmönnunum verður svo hleypt inn í sjóðheitt fjörið á miðnætti og verður dansað fram á “bleika” nótt.
Forsíðumynd: pixabay