Kristín Margrét Gylfadóttir hefur verið ráðin sem yfirhjúkrunarfræðingur svæðis hjá HSN í Fjallabyggð og Dalvík. Kristín Margrét er með BSc. próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaraprófi í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun, að því er fram kemur á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands.
Kristín Margrét býr yfir víðtækri stjórnunarreynslu innan heilbrigðisþjónustu, bæði hérlendis og erlendis. Hún hefur gegnt störfum forstöðuhjúkrunarfræðings á Kristnesspítala og þjónustustjóra endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu á Sjúkrahúsinu á Akureyri síðastliðin sjö ár, auk þess að hafa starfað um árabil í Noregi.
„Ég legg ríka áherslu á teymisvinnu, umbætur og þróun þjónustu ásamt því að stuðla að faglegu starfsumhverfi. Ég hef jafnframt sérstakan áhuga á því hvernig nýsköpun og tæknilausnir geta stutt við öfluga og örugga heilbrigðisþjónustu og komið að innleiðingu fjölbreyttra verkefna á því sviði,“
segir Kristín Margrét.
Kristín Margrét er fædd og uppalinn á Ólafsfirði og er nýlega flutt aftur þangað ásamt fjölskyldu sinni. Í frítíma sínum sækir hún gleði í sköpun, hreyfingu og samveru með fjölskyldu.
Lífsmottó Kristínar Margrétar er: Að læra, skapa og vaxa í samspili við fólk, náttúru og lífið sjálft, með opnum huga og skapandi sýn.
Kristín Margrét mun taka við stöðu nýs yfirhjúkrunarfræðing svæðis í Fjallabyggð og Dalvík þann 1. mars nk.
Mynd: Heilbrigðisstofnun Norðurlands



