Fasteignamiðlun kynnir eignina Laugavegur 5, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 213-0639 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Laugarvegur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0639, birt stærð 80.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Sjá myndir: HÉR

Um er að ræða efri hæð og ris í tvíbýli með tveimur svefnherbergjum og fataherbergi/barnaherbergi inn af öðru þeirra. Anddyri er rúmgott með fatahengi og dökkum flísum á gólfi. Stofa og borðstofa liggja saman í stóru opnu rými með góðu gluggaplássi og frábæru útsýni yfir fjörðinn. Parket er á stofu/borðstofu og gangi sem hefur verið pússað upp og lakkað. Baðherbergi er flísalagt með ljósum flísum, frístandandi sturtuklefa, hvítri innréttingu, ofn og gólftengdu klósetti. Eldhús er með nýlegri Ikea innréttingu með efri og neðri skápum grá að lit og flísum á gólfi. Þvottahús er inn af eldhúsi með dúk á gólfi, handklæðaofn og hilluplássi. Efri hæð eignarinnar var endurgerð fyrir stuttu en loftaplötur voru settar í loft og parket á gólf. Þak gluggi er á efri hæð. Svæðið var útbúið sem auka svefnherbergi. Búið er að skipta út ofnum í eigninni og skipt var um vatnsinntak í vetur. 

Anddyri: Dökkar flísar eru á gólfi og fatahengi. 
Eldhús: er með gráum Ikea innréttingum efri og neðri skápum og flísum á gólfi. 
Stofa/borðstofa: mjög rúmgott rými sem liggur saman með parket á gólfi. Gott gluggapláss og frábært útsýni. 
Baðherbergi: er með hvítri innréttingu, vask, gólftengdu klósetti, frístandandi sturtuklefa, handklæðaofn og flísar á gólfi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Svefnherbergi: er með dúk á gólfi og góðum fataskáp. 
Fataherbergi/barnaherbergi: liggur inn af svefnherbergi og er með dúk á gólfi og opnanlegum glugga. 
Þvottahús: er dúkalagt með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga. 
Efri hæð: er í opnu rými yfir allri eigninni með þakglugga. Parket er á gólfi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.