Lee Ann Maginnis var kosin formaður Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra, á fundi nefndarinnar, sem fram fór þann 26. febrúar 2021.

Lee Ann er fædd árið 1985 og er menntuð sem lögfræðingur og kennari. Hún er búsett á Blönduósi og starfar sem umsjónarmaður dreifnáms Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. 

Auk Lee Ann sitja í nefndinni Ína Ársælsdóttir Húnaþingi vestra varaformaður, Haraldur Þór Jóhannsson Skagafirði, Margrét Eva Ásgeirsdóttir Skagafirði, Nanna Árnadóttir Fjallabyggð, og Guðný Kristjánsdóttir, fulltrúi SA.   

Starfssvæði nefndarinnar er víðfeðmt, en það nær frá og með Fjallabyggð í austri og vestur til Borðeyrar og síðan alla leið suður á Hveravelli. 

Mynd/ af vefsíðu HNV