Frumvarpi til laga um breytingu á lögum um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna var dreift á Alþingi sl. föstudag.

Ákvæði laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, nr. 85/2018, lúta að jafnri meðferð á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar, óháð kynþætti og þjóðernisuppruna. Með frumvarpinu sem nú hefur verið lagt fram er lagt til að við lögin verði bætt mismununarþáttunum trú, lífsskoðun, fötlun, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum og kyntjáningu.

Frumvarpið er liður í innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en Ísland undirritaði samninginn 30. mars 2007 og fullgilti þann 23. september 2016.

Mynd/aðsend