Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir um komandi páska söngleikinn Addams family undir stjórn Sigurðar Líndal en hann er einnig þýðandi verksins. Þetta er 4. söngleikurinn sem leikflokkurinn sýnir en í ár eru 10 ár síðan fyrsti söngleikurinn Súperstar var settur á laggirnar.
Addams fjölskylduna þekkja margir en er þetta engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi. Söguþráðurinn er með gamansömu ívafi og tónlistin orkumikil blanda af suður amerískum tónum eins og tangó auk rismikilla söngleikjalaga. Kóreagrafík er í höndum Benjamin Di‘Ath sem sjálfur hefur tekið þátt í uppsetningu á söngleiknum erlendis.
Sýningadagar eru 1. apríl, 2. apríl (Skírdagur) , 4. apríl og 6. apríl (Annar í páskum).
Miðasala verður á tix.is og hefst hún þriðjudaginn 24. febrúar nk.





Myndir: Leikflokkur Húnaþings vestra





