Listamaður mánaðarins í Menntaskólanum á Tröllaskaga er Ástþór Árnason og eru sjö verk eftir hann til sýnis í Hrafnavogum, miðrými skólans. Listamaður mánaðarins er sýningarröð sem féll niður á meðan heimsfaraldurinn gekk yfir en er nú að komast af stað á ný.

Ástþór Árnason er Siglfirðingur, fæddur 1992, og þegar orðinn landskunnur fyrir húðflúr sín. Hæfileikar Ástþórs á listasviðinu komu snemma fram og var hann ungur að árum er hann opnaði sína fyrstu myndlistarsýningu. Síðan þá hefur hann haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum.

Hann lauk stúdentsprófi af listabraut við Menntaskólann á Tröllaskaga árið 2013 og hefur listsköpun verið hans aðalstarf síðan þá. Húðflúr Ástþórs eru einkar fagmannlega unnin og vekja eftirtekt fyrir vönduð vinnubrögð, verkkunnáttu og þykja einstaklega lifandi og persónuleg. Ástþór er með vinnustofu á Siglufirði þar sem hann bæði húðflúrar og vinnur að öðrum verkum sínum.

Verkin á þessari sýningu eru unnin með olíumálningu og kolum. Öll eru hjartanlega velkomin í skólann eins og alltaf.

Mynd/Gísli Kristinsson