Þann 25. júlí 2025 var ekið á gangandi vegfaranda við gangbraut á Hjalteyrargötu á Akureyri og vill lögreglan á Norðurlandi eystra fá upplýsingar um stúlkuna.
Atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan 15:00 og var með þeim hætti að ung stúlka, klædd í svartar buxur og bleika peysu hleypur í veg fyrir húsbíl sem ekið var í norðurátt.
Unga stúlkan lendir á bifreiðinni og fellur í götuna og hleypur síðan í burtu í átt að strætóskýli. Svo virðist sem hún hafi verið með öðrum krökkum sem talin eru vera á aldursbilinu 7 til 12 ára.
Vitni að atvikinu ræddi við ungu stúlkuna sem varð fyrir húsbílnum en hún vildi ekki gefa upp nafn né þiggja neina aðstoð og fór því af vettvangi áður en lögreglan fékk upplýsingar um atvikið.
Lögreglan leitar nú eftir upplýsingum um þessa ungu stúlku en líklegt þykir að hún hafi hlotið einhverja áverka við slysið.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við Lögregluna á Norðurlandi eystra í síma 444 2800 eða senda póst á netfangið nordurland.eystra@logreglan.is