Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Páll mun starfa í ráðuneytinu til áramóta, en gegna embætti framkvæmdastjóra Menntasjóðs námsmanna frá 1. janúar til 30. júní 2025, meðan á námsleyfi Hrafnhildar Ástu Þorvaldsdóttur stendur.

Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnsýslunni auk þess sem hann hefur yfirgripsmikla þekkingu af stofnanarekstri og fjármálum þeirra. Páll hefur verið forstöðumaður Fangelsismálastofnunar frá árinu 2008, en hann lauk cand. jur prófi frá Háskóla Íslands árið 2000 og stjórnendanámi (Effective Personal Productivity) frá Leadership Management International 2014. Páll var lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun frá 2001 til 2005, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna 2005-2007 og aðstoðarríkislögreglustjóri 2007.

 Hjá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu mun Páll starfa að heildarendurskoðun á lögum um Menntasjóð námsmanna sem ráðuneytið hefur til meðferðar. Vinnan hvílir á skýrslu um Menntasjóð námsmanna sem kynnt var 15. desember 2023 og þeim athugasemdum sem fram hafa komið, t.a.m. við breytingar á lögunum um menntasjóðinn vorið 2024.

Páll E. Winkel fer í leyfi frá starfi sínu sem forstöðumaður Fangelsismálastofnunar þann tíma sem vistaskiptin standa og hefur Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra verið settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans. Birgir var skipaður lögreglustjóri árið 2021. Hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins árið 2000, meistaraprófi í lögfræði árið 2010 og MBA gráðu árið 2017. Sigurður Hólmar Kristjánsson, staðgengill lögreglustjórans á Norðurlandi vestra mun gegna starfi Birgis þennan tíma.

Samkomulag dómsmálaráðuneytisins og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins um tímabundinn flutning Páls er gert á grundvelli 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og með hliðsjón af tilkynningu fjármálaráðuneytis nr. 3/2005.