Þær lokanir sem verið hafa í gildi í Strákagöngum framlengjast til þriðjudagsmorguns 21. janúar 2025.
Strákagöng lokuð tímabundið vegna vinnu
Vegna viðhalds- og framkvæmda verða Strákagöng lokuð fyrir umferð frá kl. 20:00 til 06:00 frá og með sunnudeginum 12. janúar og til þriðjudagsmorguns 21. janúar
Uppsafnaðri umferð verður hleypt kl. 22:00 og 24:00 og eftir það verða einhverjar tafir á umferð vegna vinnu.
Vegfarendur eru hvattir til að skipuleggja ferðir sínar í samræmi við lokanir.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilning og tillitsemi.
Vegagerðin.