Mexíkóostapasta með skinku, papriku og chili – uppskrift fyrir 6
- 2 skarlottulaukar, saxaðir smátt
- 2 hvítlauksrif, söxuð smátt
- 1 chili, fræhreinsað og saxað smátt
- skinka (ég var með hálft skinkubréf), skorin í bita
- 1 ½ rauð paprika, skorin í bita
- 1/2 box sveppir, sneiddir
- 1 ½ mexíkóostur
- 1 matreiðslurjómi (5 dl)
- pasta (ég var með 1 poka, 500 g.)
Hitið olíu á pönnu við miðlungsháan hita og mýkið skarlottulauk, hvítlauk og chili í nokkrar mínútur. Hækkið hitann og bætið skinku, papriku og sveppum á pönnuna. Steikið saman í nokkrar mínútur og bætið þá matreiðslurjóma og mexíkóosti (gott að skera hann í litla teninga áður svo hann bráðni hraðar) á pönnuna og látið sjóða saman þar til osturinn hefur bráðnað. Smakkið til með salti.
Sjóðið pasta eftir leiðbeiningum á pakkningu og blandið saman við sósuna. Það getur verið gott að setja smá af pastavatninu í pastasósuna til að þynna hana.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit