Miðvikan á Trölli FM fer í loftið í dag eftir sumarfrí, 4. september 2024

Andri Hrannar kemur sér vel fyrir í stúdíói 2 sem staðsett er á Gran Canaria og mun hann gera sitt besta frá kl. 16:00 til 18:00 að íslenskum tíma. 17 til 19:00 að spænskum tíma.

þátturinn einnig í mynd á Twitch.

Andri býður hlustendum í óvissuferð, sérstaklega þeim sem eru á leið heim frá vinnu, en allir aðrir eru líka velkomnir.

Hlustið á Miðvikuna á FM Trölla á miðvikudögum kl. 16 – 18.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga og á Hvammstanga og nágrenni.

Einnig má hlusta á netinu, hér á trolli.is, í Spilaranum t.d. í Apple TV og ýmsum nýrri sjónvarpstækjum, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com