Þorrablót Ólafsfirðingafélagsins var haldið á föstudagskvöldið síðastliðið á Cafe Catalina í Kópavogi. Blótið var vel heppnað og ríkti þar góð stemning, eins og sjá mátti á þeim skemmtilegu myndum og færslum sem birtust í Facebook-hópi félagsins í kjölfarið.

Að sögn Jónínu Björnsdóttur, sem birti meðal annars tilkynningu og myndir frá kvöldinu, var samkoman í alla staði afar ánægjuleg. Maturinn heppnaðist vel og dagskráin var bæði fjölbreytt og hlýleg. Gunni í Hlíð og Anna Rós fluttu minni karla og kvenna, Gunni las einnig úr ljóðabók sinni og Hugga úr Kálfsárkoti las skemmtilega sögu sem vakti athygli gesta.

Þá sendi Maggi Kollu myndir frá Ólafsfirði sem voru sýndar á skjá yfir kvöldið og vöktu þær margar góðar minningar meðal viðstaddra.

Myndirnar sem hér fylgja eru birtar með góðfúslegu leyfi Jónínu Björnsdóttur og gefa þær góða mynd af þeirri stemningu sem ríkti á þessu vel heppnaða þorrablóti Ólafsfirðingafélagsins.