Nokkrir nýliðar hjá Slökkviliði Fjallabyggðar hafa undanfarnar vikur verið í þjálfun þar sem farið er yfir grunnatriði í starfi slökkviliðsmanna. Slökkvilið Fjallabyggðar vakti athygli á æfingunum á Facebook og segir markmiðið meðal annars að undirbúa nýja liðsmenn fyrir þær aðstæður sem þeir kunna að mæta í starfi.
Samkvæmt Slökkviliði Fjallabyggðar hafa nýliðarnir þegar gengist undir heilsufarsskoðun og fram undan er þrekpróf. Í þjálfuninni er fyrst og fremst lögð áhersla á eigið öryggi slökkviliðsmanna áður en farið er í aðrar aðgerðir.
Á síðustu æfingu hópsins var æfð svokölluð „köld“ reykköfun í flugstöðvarbyggingunni á Siglufirði. Þar fóru þátttakendur í gegnum svokallaða hægri og vinstri leit, sem er aðferð sem notuð er til að leita kerfisbundið í reykfylltu rými.
Markmiðið með æfingunni var að gefa nýliðunum raunhæfa tilfinningu fyrir því hvernig er að starfa í reykfylltu húsnæði þar sem skyggni er lítið eða ekkert. Slíkar æfingar eru mikilvægur þáttur í undirbúningi slökkviliðsmanna og hjálpa þeim að bregðast hratt og rétt við þegar alvarlegar aðstæður skapast.
Myndir: Facebook / Slökkvilið Fjallabyggðar








