Bikarmót í alpagreinum hófst í Skarðsdalnum í dag og lauk fyrsta keppnisdegi með glæsibrag.
Það er Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg sem stendur fyrir mótinu á vegum Skíðasamband Íslands og er keppt í svigi og stórsvigi. Keppendur eru á aldrinum 12 til 15 ára og eru um 90 talsins, víðs vegar að af landinu.
Um er að ræða fyrsta bikarmótið sem haldið er á Siglufirði eftir margra ára hlé og því ríkti sérstök stemning í brekkunum í dag. Það var Sóley Birna Arnarsdóttir úr SSS sem hleypti mótinu af stokkunum og var fyrsti keppandi í braut.
Að sögn mótshaldara var dagurinn frábær frá upphafi til enda. Allir lögðust á eitt við að gera mótið sem best og innan félagsins ríkir mikil ánægja með hvernig til tókst. Veðrið lék við keppendur og áhorfendur og aðstæður í brekkunum voru til fyrirmyndar. Feðgarnir á troðurunum unnu mikið verk eftir krefjandi sólarhring og skiluðu brekkunum í toppstandi.
Staðarhaldarar voru öflugir í hlutverki sínu og í fjallinu ríkti létt og góð stemning. Foreldrar úr SSS stóðu vaktina í veitingasölu og sinntu fjölmörgum verkefnum tengdum mótshaldinu af miklum dugnaði. Ljóst er að samheldni og samvinna skipta sköpum þegar svona viðburður er annars vegar.

Fararstjórafundur fór fram í ráðhúsinu í gær þar sem Þorgeir Bjarnason mótsstjóri fór yfir helstu atriði mótsins með forsvarsmönnum og þjálfurum skíðafélaganna.
Þorgeir Bjarnason mótsstjóri stýrði deginum af festu og yfirvegun og fór mótið vel og skipulega fram.
Keppni heldur áfram um helgina og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu í Skarðsdalnum.
Myndir: Facebook / Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg












