Nú nýverið var samþykkt nýtt deiliskipulag fyrir Hauganes. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir nýjum götum og fjölgun lóða undir bæði íbúðir og atvinnustarfsemi. Dalvíkurbyggð óskar eftir tillögum að nöfnum á fjórar nýjar götur á Hauganesi.
Göturnar eru merktar á deiliskipulagi á eftirfarandi hátt:
A-holt, vestan Ásholts, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.
B-holt, vestan A-holts, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.
C-gata, einstefnugata frá Hafnargötu að Aðalgötu, þar sem gert er ráð fyrir verbúðum og aðkomu að skolpdælustöð.
D-gata, norðan við Aðalgötu, þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð.
Deiliskipulagið er aðgengilegt hér, bæði uppdráttur og greinargerð.
Hægt er að skila inn tillögum með eyðublaði inn á íbúgátt Dalvíkurbyggðar. Eyðublaðið má finna undir flipanum “umsóknir” og “umsóknir og eyðublöð á framkvæmdasviði”. Eyðublaðið er merkt “Nafnasamkeppni – Götur á Hauganesi”.
Tekið verður við tillögum til 10. apríl 2023.
Mynd/Dalvíkurbyggð