HMS hefur opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán fyrir júlímánuð. Í frétt á vef HMS kemur fram að hægt er að sækja um til og með 14. júlí nk.
Sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar um að festa hlutdeildarlán í sessi hafa mánaðarlegar úthlutanir verið tryggðar fram að áramótum.
Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum, sem og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða fyrstu kaupendur í að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.
Umsóknartímabilið stendur frá 1. júlí og til kl. 12:00 þann 14. júlí næstkomandi og til úthlutunar að þessu sinni eru 333 milljónir króna.
- Sjá nánar: Opnað hefur verið fyrir umsóknir
Mynd/Hari