Flugsveit belgíska flughersins, sem væntanleg er til landsins í vikunni, tekur við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi af spænska flughernum. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur og allt að 100 liðsmenn.
Um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Belgíu á Íslandi. Auk flugsveitarinnar tekur starfsfólk í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli þátt í verkefninu.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, og í samstarfi við Isavia.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 14. til 22. ágúst, með fyrirvara um veður. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan september.
Mynd/Belgian Air Force