Óvissustig er enn í gildi vegna snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og krapi er á veginum. Óvissustig er einnig á veginum um Ólafsfjarðarmúla vegna snjóflóðahættu.

Norðaustan stórhríð á Vestfjörðum í dag með tilheyrandi ófærð. Erfið aksturskylirði og blint í hríð á utanverðum Tröllaskaga, og einnig á fjallvegum á Austfjörðum eftir hádegi, t.d. Fagradal og Fjarðarheiði og fram á nótt. 

Snarpar vindhviður, um 35 m/s, í Öræfum í fyrstu, undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi eftir hádegi og fram á kvöld, og aftur snarpar vindhviður í Öræfum í kvöld.

Sjá færð á vegum: HÉR

Mynd: skjáskot úr vefmyndavél Vegagerðarinnar