eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.
Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.
FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur.
Guðrún Helga Magnúsdóttir er í hópi unga fólksins sem ákveður að flytja aftur heim að loknu námi.
Hún er Zumba- og jógakennari, nuddari, starfar sem leiðbeinandi með umsjón í 7. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra og hyggur á kennaranám.
Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.
feed.podbean.com/ssnv/feed.xml feed.podbean.com/ssnv/feed.xml feed.podbean.com/ssnv/feed.xml