Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands
- Jafnvægi í rekstri. Tæplega 64 milljóna króna halli fjármagnaður með rekstrarafgangi ársins 2018
- Undirbúningur að byggingu tveggja nýrra heilsugæslustöðva á Akureyri á áætlun – áætluð lok 2023
- Aukin sálfræðiþjónusta og geðheilsuteymi sett á fót
- Unnið að uppsetningu á búnaði fyrir fjarheilbrigðisþjónustu
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) var haldinn fimmtudaginn 10. september 2020. Að þessu sinni var fundurinn haldinn í fjarfundi. Helstu niðurstöður rekstrarársins 2019 eru þær að rekstur stofnunarinnar var að mestu í jafnvægi á árinu, en stofnunin var rekin með tæplega 64 milljóna króna halla sem fjármagnaður var með rekstrarafgangi ársins 2018. Áfram var unnið að undirbúningi að byggingu tveggja nýrra heilsugæslustöðva á Akureyri sem er nú áætlað að verði fullbúnar árið 2023. Þá hefur verið unnið að því að bæta aðstöðu íbúa á hjúkrunarheimilum og er ákvörðun um byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík fagnað.
Jón Helgi Björnsson, forstjóri HSN:
„Við höfum náð að halda rekstraráætlanir undanfarin ár, sem þakka má ómetanlegu framlagi og sveigjanleika starfsfólks HSN. Það er mjög ánægjulegt að við getum haldið áfram uppbyggingu hjúkrunarrýma í umdæminu sem og nýrra heilsugæslustöðva á Akureyri. Þetta mun ekki bara stórefla þjónustu við íbúa á svæðinu heldur vafalítið hjálpa okkur við að laða að nýtt starfsfólk. Á árinu var sett á fót geðheilsuteymi fyrir Norðurland sem er mikið framfaraskref. Strax á síðasta ári sáum við aukningu í rafrænum samskiptum sem er nú ljóst að muni bara aukast. Því vinnum við nú að uppsetningu á búnaði fyrir fjarheilbrigðisþjónustu til að efla þjónustuna enn frekar.”
Að auki kom m.a. eftirfarandi fram á ársfundinum:
- Erfiðlega hefur gengið að ráða í stöður heimilislækna, þá sérlega á Akureyri. Það horfir nú til betri vegar meðal annars vegna góðrar aðsóknar í sérnám í heimilislækningum.
- Einnig hefur reynst erfitt að fá hjúkrunarfræðinga í afleysingar og að manna ákveðnar starfseiningar innan HSN, en víða er þó mönnun nokkuð góð og í samræmi við heimildir.
- Starfsemi hjúkrunarmóttöku á Akureyri var styrkt á árinu. Þá var bætt við stöðugildum til að sinna heilsueflandi heimsóknum fyrir aldraða á öllu þjónustusvæðinu.
- Vinna hófst við stefnumótun HSN með utanaðkomandi ráðgjafa til að vinna með starfsfólki að nýjum áherslum. Ný stefna var kynnt starfsfólki í kjölfar ársfundarins ásamt aðgerðaáætlun.
- Mikil áhersla hefur verið lögð á símenntun hjá HSN með samstarfi við símenntunarstöðvar á starfssvæðinu.
- Unnið er að uppsetningu á búnaði fyrir fjarheilbrigðisþjónustu. Sjá má töluverða aukningu í samskiptum í gegnum Heilsuveru á milli ára.
- Upplýsingatæknimál verða ofarlega á baugi. Unnið er að innleiðingu á lyfjafyrirmæla- og gjafaskráningarkerfi sem og nýju símkerfi innan HSN.
- Stofnaður var faghópur um lífsstíls- og sykursýkimóttökur sem hefur það hlutverk að taka þátt í að byggja upp og samræma heilsueflandi móttökur á HSN með sérstaka áherslu á sykursýki. Fyrir eru starfandi fjölmargir faghópar sem starfa þvert á stofnunina.
Ársskýrslu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands má hlaða niður hér
Hlaða má niður stefnu og starfsáætlun 2020-2023 hér.