Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst föstudaginn 25. október.

Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á veiðistjórnunarkerfi fyrir rjúpu og því er mikilvægt að veiðimenn séu meðvitaðir um þær reglur sem gilda í ár.

Veiðireglur:
Veiði er heimil föstudaga til þriðjudaga (báðir dagar meðtaldir) innan veiðitímabils. Því er ekki heimilt að veiða á miðvikudögum og fimmtudögum. Veiðidagar eru heilir (það má veiða allan daginn).

Veiðitímabilið fyrir Norðurland eystra spannar 20 daga, þ.e. frá 25. október til 19. nóvember. Enn er sölubann á rjúpu.

Svæðisskipt veiðitímabil:
Ekki er lengur eitt veiðitímabil fyrir landið í heild heldur geta þau verið mislöng á milli landshluta. Svæðisskiptinguna (ásamt bannsvæðum rjúpnaveiða) má sjá í kortasjá Umhverfisstofnunar.

Veiðidagafjöldi og veiðitímabil landshlutanna sjást á meðfylgjandi mynd.