Hefð hefur skapast fyrir því að afhenda Samfélagsverðlaun Skagafjarðar á setningu Sæluviku en samfélagsverðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.
Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í fyrsta sinn á setningu Sæluviku Skagfirðinga árið 2016 og er þetta því í 8. sinn sem Samfélagsverðlaunin eru veitt.
Á 10. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. apríl sl. var samþykkt einum rómi að Rögnvaldur Valbergsson hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2023.
Rögnvaldur er flestum Skagfirðingum góðkunnugur. Hann hefur staðið vaktina í samfélagi okkar í áratugi og aðstoðað leika og lærða. Hans afrek eru mörg og tengjast mikið tónlist. Hann er óþreytandi að leggja góðum hlutum lið og er hafsjór af fróðleik í þeim efnum. Rögnvaldur hefur spilað undir hjá fjölmörgum kórum og allskyns hópum auk þess að vera organisti Sauðárkrókskirkju til langs tíma. Rögnvaldur er gjöfull og greiðagóður á tíma sinn og hæfileika til samfélagsins.
Það er því vel við hæfi að Rögnvaldur Valbergsson hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar og að þakka honum opinberlega fyrir öll hans óeigingjörnu störf í gegn um tíðina.
Mynd/af vefsíðu Skagafjarðar