Siglfirðingar bæði heima og að heiman hugsa oft heim í fjörðinn og ekki síst í aðdraganda jóla og yfir hátíðarnar.

Ljósmyndir frá Siglufirði færa okkur nær bæjarbragnum og eigum við nokkara ljósmyndara sem eru ötulir við að ljósmynda við allskonar tækifæri og deila þeim með okkur.

Hér eru tvö myndaalbúm með myndum eftir Ingvar Erlingsson og Vilmund Ægi Eðvarðsson sem gleðja okkur.

Ingvar tekur meðfylgjandi myndir með dróna og eru sjónarhornin framandi og einstaklega falleg.

Ægir er ötull að taka myndir á rölti sínu um bæinn allan ársins hring og í öllum veðrum. Það er virkilega ánægjulegt að fletta myndunum hans og skoða hvað er er í gangi á hverjum tíma.

Takk fyrir þessar myndir Ingvar og Vilmundur Ægir.

Myndir eftir Ingvar Erlingsson

Myndir eftir Vilmund Ægi Eðavarðsson