Sækja þarf um leyfi til að brenna bálköst ef bálköstur sem á að brenna er stærri en einn rúmmetri.
Kostnaður
Leyfið kostar 11.000 kr. og skal það greitt inn á reikning embættis sýslumanns í því umdæmi sem brennan á að fara fram.
Umsókn
Í umsókninni þarf meðal annars að koma fram:
- fyrirhuguð stærð og staðsetning bálkastar
- hvaða efni fyrirhugað er að brenna
- hvernig útbreiðsla elds verður takmörkuð
- nafn og kennitala ábyrgðarmanns
- upplýsingar um áætlaða tímasetningu brennu
- upplýsingar um aðgang að slökkvivatni, viðbúnað leyfishafa og viðbragðsáætlun
Fylgigögn
Áður en sótt er um leyfi fyrir brennu þarf að útvega eftirfarandi gögn:
- Starfsleyfi eða umsögn heilbrigðisnefndar þar sem fram kemur mat á umhverfislegum þáttum og hugsanlegum áhrifum á nágranna.
- Umsögn slökkviliðs þar sem fram kemur mat á útbreiðsluhættu, hvort viðbragðsráðstafanir umsækjanda séu nægjanlegar og hvort þörf sé á öryggisvakt.
- Staðfesting vátryggingafélags á ábyrgðartryggingu vegna brennunnar (ef þess er krafist).
Umsóknina þarf að senda til embættis sýslumanns í því umdæmi sem brennan á að fara fram. Sýslumaður fer yfir umsóknina og gefur út leyfisbréf ef öll skilyrði eru uppfyllt.
Hlutverk leyfishafa og ábyrgðarmanns
- Leyfishafi og ábyrgðarmaður þurfa báðir að vera á staðnum þegar brennan fer fram.
- Leyfishafa ber að tilkynna slökkviliðsstjóra og lögreglu með að minnsta kosti 24 klukkustunda fyrirvara áður en kveikt er í brennunni. Í flestum tilfellum er nóg að gera það með tölvupósti.
- Ábyrgðarmaður eða fulltrúi hans á að vera á staðnum á meðan móttaka efnis fyrir bálköstinn stendur yfir.
- Ábyrgðarmaður á líka að sjá um hreinsun á brennusvæði fyrsta virka dag eftir að brenna er kulnuð og eigi síðar en á öðrum degi frá því að kveikt er í bálkesti.
- Við brennu skal gæta ýtrustu varkárni og gæta þess að valda ekki óþarfa ónæði eða óþægindum.
Eldvarnareftirlit slökkviliðs sér um eftirlit með brennum, hvert í sínu umdæmi.
Kærufrestur
Heimilt er að kæra ákvarðanir sýslumanns til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins innan þriggja mánaða frá móttöku.
Mynd/ pixabay