Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af erlendum þurrkuðum sveppum Black fungus vegna salmonellu, sem Dai Phat flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað vöruna.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um innköllunina í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Nam Meo
  • Vöruheiti: Black fungus
  • Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 10.10.2023
  • Strikamerki: 8717624001321
  • Nettómagn: 100 g
  • Framleiðsluland: Víetnam
  • Innflytjandinn: Dai Phat Trading Inc ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um Salmonellu eru aðgengilegar á vefsíðu Matvælastofnunar: https://www.mast.is/is/neytendur/matareitrun/salmonella.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar Dai Phat gegn endurgreiðslu.