Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir lausa til umsóknar styrki til að efla samstarf og nýsköpun í íslenskunámi innflytjenda. Úthlutað verður allt að 200 m.kr. í samstarfsverkefni sem ætlað er að ná til fjölbreyttra hópa innflytjenda með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem verða gerð aðgengileg. Gert er ráð fyrir samstarfi þvert á kerfi menntunar, atvinnulífs og/eða velferðar þar sem samstarfsaðilar geta verið skólar, fræðsluaðilar, sveitarfélög, samtök, félög, stofnanir/fyrirtæki eða sérfræðingar.

Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Úthlutunin byggir jafnframt á menntastefnu 2030 og á þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026. Þar eru settar fram 22 aðgerðir um aukið aðgengi að fjölbreyttum leiðum fyrir ólíka hópa innflytjenda til að læra íslensku.

Megináherslur styrkveitinga

Styrkt verða samstarfsverkefni sem varða a.m.k. eitt af sex neðangreindum áherslusviðum. Þau verða að fela í sér nýjung, byggja á metinni þörf ásamt faglegri og rekstrarlegri getu eins umsóknaraðila sem jafnframt ber ábyrgð á verkefninu. Framkvæmdartími er 1-2 ár.

Umsóknir verða að tengjast a.m.k. einu af eftirfarandi áherslusviðum:

  1. Samstarf um íslenskustuðning í starfs-, iðn-, tækni- eða undirbúningsnámi/starfsþjálfun.
  2. Samstarf um innleiðingu aðferða og þekkingar til að undirbúa einstaklinga 16 ára og eldri fyrir frekara nám eða störf með áherslu á læsi, menningu og samskipti í íslensku samfélagi.
  3. Samstarf um stafræna miðlun og/eða einstaklingsmiðaðan námsstuðning við unga innflytjendur til að fjölga tækifærum þeirra til virkrar þátttöku eða rjúfa einangrun vegna skorts á íslenskukunnáttu.
  4. Samstarf um að auka vægi íslensku í daglegu lífi fullorðinna innflytjenda með sérstaka áherslu á þau sem vinna ein eða eru heimavinnandi til að efla félagsleg tengsl, bjargráð og samfélagslega þekkingu.
  5. Samstarf um íslenskunám fyrir foreldra barna og ungmenna í skóla- og frístundastarfi með það að markmiði að þau geti stutt börn sín í nýju málumhverfi og verið virkur hluti af því.
  6. Samstarf um íslenskunám starfsfólks með fjölbreyttan tungumála- eða menningarbakgrunn sem vinnur í skólum, í frístundastarfi eða við umönnun með sérstaka áherslu á uppeldi, menntun eða velferð.

Umsókn

Sótt er um styrk á Mínum síðum á vef Stjórnarráðsins (undir Eyðublöð – Mennta- og barnamálaráðuneytið). Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Hægt er að nálgast ítarlegri leiðbeiningar um notkun á Mínum síðum hér. Við úthlutun er einnig farið eftir reglum um úthlutun styrkja mennta- og barnamálaráðherra og óska má eftir frekari aðstoð á mrn@mrn.isUmsóknarfrestur er til og með 15. október og úthlutað verður í nóvember.

Mynd/aðsend