Það verður sannkallað blakfjör í Fjallabyggð dagana 27. og 28. febrúar þegar hið árlega Siglómót Blakfélags Fjallabyggðar fer fram. Alls eru 52 lið skráð til leiks og ljóst að líf og fjör mun einkenna bæjarfélagið alla helgina, jafnt innan vallar sem utan.

Sjá einnig: Fjallabyggð tekur á móti 52 liðum í einu stærsta blakmóti ársins

Af því tilefni hefur bæjarskrifstofa Fjallabyggðar tekið saman upplýsingar um breytta opnunartíma Íþróttamiðstöðva og opnun veitingastaða í sveitarfélaginu, svo gestir og íbúar geti skipulagt dvöl sína sem best.

Siglómót helgarinnar: Íþróttamiðstöðvar með breytta opnun og veitingastaðir bregðast við gestafjölda

Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar auglýsa breytta opnun föstudaginn 27. febrúar og laugardaginn 28. febrúar. Á föstudag verða miðstöðvarnar í bæði Siglufirði og Ólafsfirði opnar frá klukkan 06.30 til 22.30. Á laugardag verður opið frá klukkan 08.00 til 19.00 á báðum stöðum. Á sunnudag, 1. mars, verður opið í Íþróttamiðstöðinni á Siglufirði frá klukkan 10.00 til 14.00 en í Ólafsfirði frá klukkan 14.00 til 18.00.

Siglómót helgarinnar: Íþróttamiðstöðvar með breytta opnun og veitingastaðir bregðast við gestafjölda

Jafnframt liggja fyrir samanteknir opnunartímar veitingastaða í Fjallabyggð helgina 27. febrúar til 1. mars. Á Siglufirði verða meðal annars Aðalbakarí, Hótel Siglunes, Kaffi Rauðka, Pizzabakarinn, Segull 67 og Sunna Sigló hótel með opið samkvæmt auglýstum tímum, en á Ólafsfirði taka Hvanndalir og Höllin á móti gestum yfir helgina. Sérstaklega er bent á að Kaffi Rauðka verður lokað á laugardag vegna lokahófs blakmóts.

Með þessari samantekt vill bæjarskrifstofan auðvelda mótsgestum og íbúum að nálgast upplýsingar á einum stað. Ljóst er að Fjallabyggð verður í sannkölluðum hátíðarbúningi um helgina þegar tugir liða og fjöldi gesta streyma í bæjarfélagið vegna Siglómótsins.