Í gær á sjómannadaginn 1. júní var lagður blómsveigur að minnisvarða um týnda og drukknaða sjómenn á Siglufirði. Slysavarnadeildin Vörn sá um athöfnina.
Sjómaðurinn Sigurður Örn Baldvinsson var heiðraður fyrir störf sín til sjós og hélt Hjalti Gunnarsson ræðu og rakti sjómannsferil Sigurðar Arnar. Einnig var eiginkonu Sigurðar Arnar, Halldóru Jörgensen færður blómvöndur.
Að því loknu var Slysavarnadeildin Vörn með kaffisölu.







Forsíðumynd/aðsend
Myndir í frétt/Sveinn Snævar Þorsteinsson