Síldarævintýrið á Siglufirði 2025 er nú haldið í þrítugasta og fyrsta sinn. Lagt er upp með fjögurra daga fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina í svipuðum anda og verið hefur undanfarin ár.
Sem fyrr er markmið hátíðarinnar að kynna það sem Siglufjörður hefur upp á að bjóða í menningu, mat og drykk að ógleymdu stórfenglegu umhverfi og sögunni sem er við hvert fótmál.
Öll barnadagskrá verður ókeypis, heimafólk í aðalhlutverki í tónlistarflutningi og annarri skemmtun, söfn og setur bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Auk þess verður sameiginleg grillveisla bæjarbúa, hverfaskreytingar, bjórleikar, síldarball, froðufjör, hoppukastalar, varðeldur, fjöldasöngur og margt fleira.
Fimmtudagur 31. júlí
Kl. 10.00 – 17.00
Síldarminjasafn: Listsýning Ragnars Páls Einarssonar á Gránulofti
Kl. 14.00 – 17.00
Minningarsýning um Björn Steingrímsson frá Ólafsfirði
Gallerí Arcticglass, Eyrargötu 27
Kl. 16.00 – 18.00
Íbúar klára að skreyta hús í hverfislitum
Kl. 18.00 – 19.30
Skólabali – Grillveisla fyrir íbúa og gesti
Kl. 19.30
Síldarball á Segull 67 – Stulli og gömlu síldarlögin
Glæsileg dagskrá á Síldarævintýri 2025
Mynd/Síldarævintýrið