Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið skiptingu rúmlega 420 milljóna króna af fjárlögum sem varið verður til að efla tækjakost heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni þar sem endurnýjunarþörf er orðin brýn.

Á fjárlögum þessa árs eru samtals 421,8 milljónir króna ætlaðar til tækjakaupa hjá heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Rúmur helmingur fjárins er föst fjárveiting en 200 milljónir króna er tímabundin fjárveiting ætluð til endurnýjunar á myndgreiningarbúnaði stofnananna. Með þessu tímabundna framlagi er verið að bregðast við uppsafnaðri þörf fyrir úrbætur í þessum efnum.

Eftirfarandi eru upplýsingar um skiptingu fjárins sem úthlutað er með hliðsjón af þörf stofnananna og stærð þeirra.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands 70
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 60
Heilbrigðisstofnun Norðurlands 85
Heilbrigðisstofnun Austurlands 85
Heilbrigðisstofnun Suðurlands 66,8
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 55
Samtals 421,8

 

Af stjornarradid.is