Þau voru kát og brosandi ungu hjónin sem mættu í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár til þess að vitja vinnings, en þau voru ein af þremur sem unnu 7 falda Lottópottinn síðasta laugardag og fengu rúmar 34,5 skattfrjálsar milljónir í vinning. Vinningsmiðann höfðu þau keypt hjá Olís í Norðlingaholti.

Hjónin eiga tvö ung börn og eru búsett á höfuðborgarsvæðinu, þau ætla að byrja á að fagna útskrift, greiða niður námslán og einnig íhuga þau frekari nám nú þegar áhyggjur af fjármálunum eru úr sögunni.

Hinir tveir heppnu vinningshafarnir höfðu keypt miðana sína á lotto.is og fengu þeir því mjög svo ánægjulegt símtal frá Íslenskri getspá þar sem
þeim var tilkynnt um gleðifréttirnar. Sá fyrri sem fékk símtalið var karlmaður utan af landi en hann hafði fylgst með útdrættinum og var búinn að sjá tölurnar sínar dregnar út og beið hann því spenntur eftir símtalinu góða.

Hinn vinningshafinn, kona í Reykjavík, vissi ekki enn af vinningnum svo símtalið kom henni skemmtilega mikið á óvart og var hún varla að trúa
fréttunum.

Íslensk getspá óskar öllum vinningshöfunum innilega til hamingju og þakkar þeim og öllum öðrum lottóspilurum fyrir stuðninginn við eignaraðila Getspár sem eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Öryrkjabandalag Íslands og Ungmennafélag Íslands, sá stuðningur skiptir miklu máli.

 

Fréttatilkynning