Alvarlegt umferðarslys varð í miðbæ Akureyrar á þriðjudag þar sem ekið var á gangandi vegfaranda.

Vegfarandinn var karlmaður á áttræðisaldri og lést hann af áverkum sínum á Sjúkrahúsi Akureyrar síðdegis í gær. Vegfarandinn var að ganga yfir götu þegar ekið var á hann.

Málið er í rannsókn hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra.