Leikfélag Hólmavíkur stendur í ströngu um þessar mundir við uppsetningu á gamanleikritinu Nanna systir eftir Einar Kárason og Kjartan Ragnarsson, undir styrkri leikstjórn Skúla Gautasonar. Sýningin hefur þegar verið sýnd í Sævangi á Ströndum við mikinn fögnuð og frábærar móttökur.

Leikfélag Hólmavíkur er eitt af örfáum áhugaleikfélögum á landinu sem ríghalda í þá hefð að fara í leikferðalög með sýningar sínar. Þau hafa í þetta skipti ákveðið að leggja land undir fót í fimm daga með fimm sýningar og ætla meðal annars að sýna í Víðihlíð í Húnaþingi vestra þann 28. apríl.

Leikarar í leikritinu eru tíu, fimm konur og fimm karlar. Sumir leikararnir eru gamalreyndar kanónur og aðrir eru að stíga sín fyrstu skref á leiksviði með Leikfélagi Hólmavíkur en þau eru öll jöfn í þessari stórskemmtilegu uppsetningu.

Sögusvið Nönnu systur er samkomuhús í íslensku sjávarþorpi árið 1996. Þar stendur til að setja upp söngleik um Fjalla-Eyvind. Óvæntar heimsóknir og uppákomur setja þó strik í reikninginn. Það gengur á ýmsu og útkoman er vægast sagt skrautleg.

Sýningar í leikferð:
Dalabúð í Búðardal: 24. apríl kl. 20:00
Samkomuhúsið Grundarfirði: 25. apríl kl. 20:00
Lyngbrekka í Borgarfirði: 26. apríl kl. 20:00
Árgarður í Skagafirði: 27. apríl kl. 20:00
Víðihlíð í Húnaþingi vestra: 28. apríl kl. 20:00

Nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á Facebook-síðu Leikfélags Hólmavíkur.