Embætti landlæknis hefur gefið út smáforritið Skanna C-19 sem er sérstaklega ætlað til að auðvelda þeim sem standa fyrir fjölmennum viðburðum að sannprófa gildi vottorða um neikvæða niðurstöðu úr skimun fyrir Covid-19 (PCR- og hraðpróf) á einfaldan og fljótvirkan hátt.
Skanni C-19 geymir engar upplýsingar úr QR-kóða vottorðsins. Sannprófun á vottorðinu fer fram í smáforritinu sjálfu svo það þarf ekki tengingu við ytra kerfi þegar QR-kóðinn er lesinn og staðfestur.
Skanni C-19 er í boði ókeypis í smáforritaverslunum Play Store hjá Google og App Store hjá Apple.
- Hér er hlekkur í búðina hjá Google fyrir Android tæki:
https://play.google.com/store/apps/details?id=is.landlaeknir.skanni - Hér er hlekkur í búðina hjá Apple fyrir iOS tæki:
https://apps.apple.com/is/app/skanni-c-19/id1584976310