Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg hélt á dögunum sína árlegu vorhátíð, þar sem foreldrar og fjölskyldur iðkenda komu saman til að fagna lokum vetrarvertíðarinnar.
Þar sem aðstæður til skíðaiðkunar voru ekki fyrir hendi vegna snjóleysis var hátíðin haldin hjá Segli 67 brugghúss, í boði Matta og Fanneyjar, sem bæði tilheyra öflugum foreldrahópi félagsins.
Á meðan undirbúningur stóð yfir léku börnin sér á skólabalanum og ríkti þar gleði og góð stemning. Grillið var í öruggum höndum Kristjáns Þórs, Andra Þórs og Hjalta Bergsteins, sem grilluðu hamborgara og pylsur fyrir um 100 gesti. Anna María, Guðný og Sandra stýrðu framreiðslunni af mikilli röggsemi og tryggðu að allir fengju mettan maga.
Skíðafélag Siglufjarðar þakkar kærlega öllum þeim sem mættu og tóku þátt í að gera daginn að ánægjulegri lokahátíð vetrarins. Sérstakar þakkir fá iðkendur og foreldrar sem leggja sitt af mörkum fyrir félagið með óeigingjörnum hætti – það er sú elja og samstaða sem gerir starfið hjá SSS öflugt.










Myndir/SSS