Matvælastofnun vekur athygli á að skordýr hafa fundist í Sólgæti döðlum frá Heilsu ehf. Fyrirtækið hefur innkallað döðlurnar af markaði, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Sólgæti
- Vöruheiti: Döðlur
- Strikanúmer: 5024425287810
- Nettómagn: 500 g
- Best fyrir: 15.08.2019
- Lotunúmer: 7227
- Framleiðsluland: Bretland
- Innflytjandi: Heilsa ehf., Bæjarflöt 1-3, 112 Reykjavík
- Dreifing: Verslanir Nettó, Kjörbúðin Blönduósi, Seljakjör, verslanir Heilsuhússins, Fjarðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar og Pétursbúð
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í síma 517 0670 og á netfanginu heilsa@heilsa.is.