Tilkynnig af vefsíðu MTR:

Nemendur þurfa sem allra fyrst, og ekki síðar en á þriðjudag, að skrá sig í áfanga á næstu önn.

Mikilvægt er að skipuleggja námið í samræmi við þá framvindu sem hver og einn stefnir að.

Meðal þess sem hægt er að velja eru áfangar um skapandi hugsun, sirkuslistir og afreksíþróttaþjálfun.

Þá er í boði áfangi sem heitir „Náðu tökum á náminu“ og annar sem ber titilinn „Vertu leiðtoginn í þínu lífi“.

Í íslensku er, auk hefðbundinna áfanga, hægt að kynna sér þróun glæpasagnaritunar innanlands og utan.

Hægt er að leggja stund á skapandi ljósmyndun og prentun en líka næringarfræði, geðrækt, fjármálalæsi og margt fleira. Þá er hægt að skrá sig í námsferð til Istanbul í vikunni fyrir páska.

 

Af mtr.is