Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar þann 12. desember síðastliðinn var samþykkt að leggja fram tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verndarsvæði í byggð innan þéttbýlisins á Hofsósi. Um er að ræða bæjarkjarnana Plássið og Sandinn sem eru samtals um 3 ha að stærð og afmarkast af Brekkunni að norðan, af brekkubrún Bakkans að austan og sjó og hafnargarði að sunnan og vestan.

Á svæðinu er hluti elstu byggðarinnar á Hofsósi og markmið tillögunnar er verndun þessa mikilvæga bæjarhluta til að framtíðaruppbygging taki mið af þeirri menningarsögulegu arfleif sem þar er.

Skýrslu með tillögunni og greinargerðinni um verndarsvæðið má nálgast hér á heimasíðunni ásamt skýrslum um húsakönnun og fornleifaskráningu. Gögnin liggja einnig frammi í ráðhúsi sveitarfélagsins við Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta og öðrum sem vilja koma sjónarmiðum sínum á framfæri geta komið með athugasemdir við tillöguna til föstudagsins 12. apríl 2019.  Senda skal skriflegar athugasemdir til skipulags- og byggingarfulltrúa eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is